Fréttir

Körfubolti | 9. ágúst 2004

Maggi Gunn með 32 stig í síðasta leiknum gegn Póllandi sem endaði 75-85

Þriðji og síðasti leikur íslenska landsliðsins gegn Póllandi var ekki sá besti. Pólverjarnir virtust eiga meira eftir á bensíntanknum þegar í seinni hluta leiksins kom og þeir náðu fljótlega í seinni hálfleik forystu sem tryggði þeim nokkuð öruggan 10 stiga sigur, 75-85. Samt geta landsmenn verið ánægðir með frammistöðu okkar manna, heilt yfir, því einn sigur í þremur leikjum gegn sterkri A-þjóð sýnir að okkar lið er ekki langt á eftir. Við erum jú B-þjóð, enn sem stendur, og eigum fyllilega erindi í keppni við A-þjóðir, eins og leikir gegn Belgíu og Póllandi hafa nú sýnt.

Leiksins í kvöld verður helst minnst fyrir frábæra frammistöðu Magnúsar Gunnarssonar sem kunni greinilega vel við sig á heimavelli. Drengurinn fór hreinlega á kostum og gerði alls 32 stig, þar af voru sjö þriggja stiga körfur. Þetta er mikið einstaklingsafrek, því okkar heimildir herma að aðeins hafi fimm leikmönnum áður í sögunni tekist að skora yfir 30 stig í landsleik með Íslandi. Það voru þeir Valur Ingimundar, Teitur Örlygs, Pétur Guðmundsson, Guðjón Skúlason og Pálmar Sigurðsson. Allt frábærir leikmenn og gaman fyrir Magnús að komast í þann hóp.

Þó verður að segjast að aðrir leikmenn landsliðsins urðu frekar passívir í seinni hálfleiknum í kvöld. Það var eins og að þeir væru bara að bíða eftir Magga og reyndu full lítið sjálfir. Slíkt er ekki vænlegt til árangurs, því okkar lið verður að ógna stöðugt úr öllum áttum, ef sigur á að vinnast gegn góðum körfuboltaþjóðum.

En það er ástæða til að óska Sigurði, Friðriki og drengjunum til hamingju með ágætan árangur. Næst á dagskrá er þátttaka í mjög sterku móti í Ungverjalandi, þar sem, auk heimamanna og Íslendinga, taka þátt Pólverjar og Makedóníumenn. Í þeirri ferð verður einnig leikið gegn Austurríki sem er B-þjóð, líkt og Ísland.