Fréttir

Körfubolti | 20. apríl 2005

Maggi Gunn. vekur athygli.

Keflavík hefur vakið athygli á Íslenskum körfubolta með spilamennsku sinni í bikarkeppni Evrópu. Keflavík hefur nú tvö ár í röð tekið þátt og náð að komast í 8 liða úrslit. Það hefur líka vakið athygli á meðal áhugamanna um körfubolta í Evrópu að Keflavík varð um daginn Íslandsmeistari þriðja árið í röð. Þetta höfum m.a. orðið varið við með fjölda tölvupósta sem okkur hefur borist og á ferðalögum í Evrópukeppninni. Franskt lið er nú þessa dagana að leita að skotbakverði og hefur verið að skoða þann möguleika að fá til sín Magnús Þór Gunnarsson. Hugsunin hjá þeim er að fá leikmann til að taka þátt í lokaátökunum í frönsku deildinni, sem er mjög sterk deild. Eins og Maggi sagði í samtali við vf.is ''Þetta er ekkert komið á hreint, það var bara mælt með mér og þeir eru að skoða þessa hluti. Ég heyrði þetta bara í gær en ég veit að það er smá áhugi hjá þessu liði og hann er gagnkvæmur. Þetta er ekki beint fyrir næsta tímabil heldur er verið að tala um síðasta mánuðinn í frönsku deildinni.“