Maggi hrökk í gírinn og Keflavík lagði Hauka 98-90 í skemmtilegum bikarleik
Maggi Gunnars hefur leikið undir getu undanfarnar vikur og ekkert benti til þess að það myndi breytast í fyrri hálfleiknum gegn Haukum i Bikarnum. Hann skoraði ekkert og virtist ekki hafa mikið sjálfstraust. En þegar hann kom inn á um miðjan 3ja leikhluta sýndi hann sitt rétta andlit. Á stuttum tíma setti hann þrjá þrista úr fimm tilraunum og skoraði alls 15 stig í hálfleiknum. Þar að auki stal hann boltanum tvisvar á mikilvægum augnablikum og lék fína vörn. Síðasti þristurinn hjá Magga var svakalegur, rétt áður en skotklukkan rann út.
En einn maður vinnur ekki leiki, það er nokkuð ljóst. Keflvíkingar voru skrefinu á undan í fyrri hálfleik og leiddu með sex stigum í hálfleik, 48-54. Sóknarleikurinn hafði verið ágætur en vörnin afleit. Til dæmis fengu skyttur Hauka allt of mikið næði til að athafna sig og dúndruðu niður þristum í gríð og erg, mest allt úr galopnum færum.
Í seinni hálfleik hertist vörnin en verulega hægðist á sókninni sem varð stöð. Mistökin hrönnuðust upp og alla áræðni skorti. Afleiðingin var sú að Haukar komust yfir og náðu sex stiga forskoti, 67-61. Þá kom Maggi með svaka góðan kafla og kveikti í Keflavíkurliðinu sem náði að rétta sinn hlut fyrir lok þriðja leikhuta, staðan var þá 69-74. Síðasti leikhluti var síðan leikin af skynsemi og forystan hélst yfirleitt á bilinu 6 - 11 stig. Sigurinn var aldrei í alvarlegri hættu og leikurinn endaði með 8 stiga sigri, 90-98.
Þeir Derrick og Nick áttu báðir fínan leik, ekki síst í sóknarfráköstum, Nick tók 6 og Derrick 5. Þeir skoruðu líka grimmt, Nick 24 og Derrick 30. Auk þess varði Nick 4 skot og var góður í vörninni, ef undan eru skildar fyrstu mínúturnar þegar hann dekkaði Halldór Kristmanns (ekki) og Halldór setti 10 stig strax í upphafi. Það er reyndar stórmerkilegt hve mikið Derrick skorar, því stundum finnst manni að hann fái boltann ekki nægjanlega mikið inni í teignum, hann skorar mest úr hraðupphlaupum og eftir sóknarfráköst.
Davíð átti einn sinn besta leik í vetur, sérstaklega í fyrri hálfleik, og skoraði 9 stig, en hann og Sverrir stýrðu leiknum ágætlega, þótt Sverrir hafi ekki tekið eitt skot í leiknum (!). Hann var þó vel virkur og stal 5 boltum og gaf 7 stoðsendingar. Samt mega þeir félagar, ásamt Hirti, auka enn við hraðan þegar þeir bera boltann upp völlinn, því stundum förum við full hægt yfir og leyfum andstæðingunum að stilla upp sinni vörn.
Gunni Einars var "solid" með 12 stig, 4 fráköst og 5 stoðsendingar og Jonni var góður, þann stutta tíma sem hann lék, 5 fráköst og 8 stig á 15 mínútum. Hjörtur hafði hægt um sig og þeir Gunnar Stef og Halldór komu ekki við sögu í þetta skiptið.
Haukarnir voru mun sprækari en síðast þegar við lékum gegn þeim, enda mikill fengur í nýja Kananum, Robinson, sem er snaggaralegur bakvörður sem getur skotið og brotist inn í vörnina. Eins var hittni Haukamanna hreint frábær í leiknum, 13 af 28 þristum (45%), en á sama tíma voru okkar menn afar óhittnir úr langskotunum, aðeins 7 af 25 rötuðu oní (28%). Mike Manciel er gríðarlega öflugur leikmaður og erfiður viðureignar, líkamlega sterkur og fjölhæfur, getur póstað sterkt upp og er auk þess afar skotviss fyrir utan 3ja stiga línunnar. Telja má víst að Haukarnir muni nú láta meira að sér kveða, enda gerir Robinson þá að betra liði, hann opnar vörnina og skapar usla.
Heilt yfir var leikurinn mjög skemtilegur á að horfa, mikið um sviptingar og skemmtileg tilþrif. Þó lék Keflavíkurliðið ekki góða vörn nema til skamms tíma og eins var sóknarleikurinn stundum full lengi í gang. En menn léku af mikilli skynsemi í lokin og voru afar duglegir í sóknarfráköstunum. Niðurstaðan er altént sú að við erum komnir áfram í Bikarnum, í undanúrslit, og mætum þar Njarðvík, Grindavík eða Snæfelli.