Maggi með 17.5 stig í Andorra
Magnús Þór Gunnarsson varð stigahæstur Íslendinga á smáþjóðaleikunum í Andorra sem lauk um helgina. Maggi skoraði 17.5 stig eða samtals 70 stig í 4 leikjum. Silfrið kom í hús hjá körlunum þegar íslenska liðið vann 12 stiga sigur á San Marínó, 94-82, í fjórða og síðasta leik sínum. Magnús Þór Gunnarsson skoraði 27 stig í leiknum. Nokkra sterka leikmenn vantaði á mótið s.s Jón Arnór, Loga Gunnars., Friðrik Stefáns., og Jón Hafsteinsson. Þjálfarinn Sigurður Ingimundarsson var líka fjæri góðu gamni, enda fæddist honum strákur rétt fyrir helgi.
