Fréttir

Körfubolti | 3. apríl 2005

Maggi og Jonni skrifa undir 2 ára samning við Keflavík

Stjórn körfuknattleiksdeildar Keflavíkur er þegar farið að vinna í leikmannamálum fyrir næsta tímabil. Í dag skrifuðu landsliðsmennirnir Maggi Gunn. og Jonni undir nýjan 2 ára samning við Keflavík. Þessi samningur er mjög mikilvægur fyrir okkur enda þeir Maggi og Jonni verið að spila mjög vel í vetur.  Strákarnir eiga þó nóg inni enda bara á 24 aldursári. Til hamingju Keflavík.

Við undirskrift samningsins í dag.  Maggi, Hemmi formaður og Jonni.