Fréttir

Körfubolti | 11. mars 2005

Maggi og Terrel báðir með á morgun

Magnús Gunnarsson fékk slæmt högg á nefið í leiknum gegn Grindavík í gær, eftir samstuð við Terrel Taylor. Nef Magnúsar brákaðist og bólgnaði verulega. Hann kennir töluvert til en gerir þó ráð fyrir að mæta til leiks á morgun, jafnvel með grímu eins og Richard Hamilton hjá Detroit. Við vonum að drengurinn nái sér hið fyrsta, enda er hann einn lykilmanna liðsins eins og allir vita, og hefur aldrei verið jafn góður og í vetur.

Stjórn körfuknattleiksdeildar Keflavíkur lagði fram kæru á Terrel Taylor eftir síðasta leik vegna atviksins þegar hann steig ofan á Jón N Hafsteinsson. Stjórnin taldi að um mjög gróft og óíþróttamannslegt athæfi hafi verið að ræða og samkvæmt reglum aganefndar skal dæma menn í leikbann fyrir slíkt. En aganefnd var ekki sammála stjórninni og taldi að refsingin sem maðurinn fékk í leiknum ("óíþróttamannsleg villa") hafi verið viðeigandi. Því hafi ekki verið tilefni til að dæma hann í bann. Sitt sýnist greinilega hverjum í þessu máli eins og svo mörgum öðrum, en aganefnd hefur kveðið upp sinn úrskurð og við því er ekkert að segja. Terrel hefur því leikheimild á morgun.