Magnaður 2. leikhluti gerði gæfumuninn í sigri á ÍR
Keflavík sigraði í kvöld ÍR, 92-69 í Toyotahöllinni í Keflavík. Leikurinn var nokkuð kaflaskiptur en frábær 2. leikhluti Keflavíkur gerði út um leikinn.
Keflavík var nokkuð lengi í gang og séstaklega var sóknarleikur liðsins stirður. Gestirnir áttu einnig mjög greiða leið að körfunni og staðan eftir 1. leikhluta var 11-20 ÍR í vil. Þetta átti allt eftir að breytast því Siggi tók létta messi í leikhléinu. Strákarnir komu inní 2. leikhluta með allt annað hugarfar og börðust um hvern bolta. Keflavík vann annan leikhlutann 35-4 og tala tölurnar sínu um yfirburðina á vellinum. Allt liðið fór á kostum bæði í sókn og vörn og sýndu áhorfendum að það getur spilað mjög hraðann leik. Þó allir hafa skilað sínu hlutverki vel var enginn betri en Þröstur sem fór hamförum og setti niður þrjá þrista á stuttum kafla. Staðan að þegar flautað var til hálfleiks var því 46-26!!
Nokkuð ljóst var að gestirnir myndu koma til baka eftir þennan slæma kafla enda var það raunin. Þeir náðu að minnka forustuna niður í 11.stig í 3. leikhluta en kláruðu um leið púðrið. Mikill munur er á breiddinni í liðunum því ÍR keyrir mikið á 5. leikmönnum liðsins.
ÍR-ingar minnkuðu forustuna niður 9. stig með því að skora fyrstu körfuna í 4. leikhluta. Lengra komust þeir ekki því Gunnar Einarsson svaraði með 3. þristum ásamt því að stela boltanum og fekk leikmaður ÍR á sig ásetningsvillu í kvölfarið. Ungu leikmenn liðsins fengu svo að spreyta sig á lokamínutum og náðu að halda forustunni út leikinn. Guðmundur Gunnarsson og Eldur Ólafsson nýr leikmaður liðsins spiluðu sinn fyrsta leik fyrir Keflavík.
Nokkur skemmtileg tilþrif sáust í leiknum. Td. blokk frá bæði Sigga og Elvari en tilþrifarverðlaun leiksins átti þó Gunni Stef. með því nála sér í 5. villur og 3. af þeim á aðeins 1 1/2 mín. Geri aðrir betur :)
Stigahæstir var jaxlinn Gunnar Einarsson með 25. stig og þar af 5. þriggjastiga körfur. Ísafjarðartröllið Siguður Þorsteinsson átti mjög góðan leik og var með 22. stig og 10. fráköst. Þröstur var engu síðri og er að njóta sín vel í kanaleysinu. Þröstur var með 17. stig og 7. fráköst. Hörður var með 14.stig og 6. stoðsendingar og Villi setti niður 8. stig. Gaman var einnig að fylgast með kjúklingunum þeim Elvari og Axel. Axel átti sinn besta leik með mfl. og kemur inn með mikinn hraða í liðið.