Magz sjóðandi í góðum sigri
Keflavík varð í kvöld fyrst liða í Domino´s deildinni til að ná sér í sigur á heimavelli Íslandsmeistara Grindavíkur. Magnús Þór Gunnarsson hitnaði heldur betur þegar Keflvíkingar létu 106 stigum rigna yfir gula Grindvíkinga, lokatölur 98-106 Keflavík í vil. Byrjunarlið Grindvíkur: Jóhann Árni Ólafsson, Aaron Broussard, Samuel Zeglinski, Þorleifur Ólafsson og Sigurður Gunnar Þorsteinsson. Byrjunarlið Keflavíkur: Billy Baptist, Valur Orri Valsson, Magnús Þór Gunnarsson, Darrel Keith Lewis og Michael Craion. Texti og mynd fengin að láni hjá Karfan.is.