Fréttir

Körfubolti | 5. febrúar 2005

Maraþon í Heiðarskóla hefst kl. 14

9. flokkar drengja og stúlkna hyggjast halda til Gautaborgar í vor í keppnisferð. Þetta unga og efnilega körfuboltafólk hefur því farið ýmsar leiðir til að safna fé fyrir þessum ferðum. Ein fjáröflunin er að leika maraþon-körfubolta. Með öðrum orðum, þá munu þau hefja leik kl 14 í dag í Heiðarskóla og leika sleitulaust í 12 klukkustundir. Fjáröflunin felst í því að fá fólk og fyrirtæki til að heita þeim verðlaunum ef maraþonið tekst. Heiðarskólinn verður opinn og stuðningsmönnum er frjálst að kíkja við og hvetja krakkana til dáða, en þetta er flott framtak hjá þeim. Þau leika körfu en vekja um leið athygli á ferð sinni í vor. Vonandi gengur þetta sem best.