Meira af myndum á heimasíðuna
Það hefur lengi verið ætlunin hjá heimasíðunni að birta fleirri og betri myndir úr leikjum Mfl karla og kvenna. Eitthvað hefur verið bætt úr þessu en nú verðu mikil breyting á. Heimasíðan fékk góðan styrk til myndavélakaupa hjá Samhæfni Tæknilausnir á Hringbrautinni í Keflavík. Myndavélin sem notuð verður heitir HP Photosmart R507. Bestu þakkir til Bjössa og félaga í Samhæfni Tæknilausnir.