Fréttir

Körfubolti | 1. júní 2003

Meira um kvennaliðið- Erla Reynisdóttir snýr aftur og Anna María leikur áfram

Kvennaliðið náði frábærum árangri í fyrra undir stjórn Önnu Maríu Sveinsdóttur og varð Íslandsmeistari með miklum yfirburðum. Nú hættir Anna María sem þjálfari og Guðjón tekur við en Anna María hyggst engu að síður leika áfram enda er hún enn einn öflugasti leikmaður landsins.

Gaman er frá því að segja að Erla Reynisdóttir mun nú leika aftur með Keflavík eftir nokkurra ára hlé, en hún var við háskólanám í Bandaríkjunum síðustu ár. Frábært verður að fá Erlu aftur í liðið, en hún var á sínum tíma orðinn besti leikmaður landsins. Annars eigum við ekki von á miklum breytingum þó það muni skýrast betur á næstu vikum. Stefnan verður sett á toppinn í kvennaboltanum, eins og venjulega.