Fréttir

Körfubolti | 16. október 2005

Meira um Skallagrímsleikinn

Hann var opinn og hraður leikur kvöldsins í Sláturhúsinu þegar Skallagrímsmenn úr Borgarnesi komu í heimsókn. Lokatölur urðu 105 - 96 fyrir Keflavík sem náði tökum á leiknum í öðrum leikhluta og hélt forystunni út leikinn, án þess að gestirnir náðu að ógna verulega. Ljóst er þó að Valur Ingimundar er með ágætt lið í sínum höndum sem á örugglega eftir að vinna marga leiki í vetur.

Varnarleikur okkar manna var óvenju götóttur í kvöld og náðu gestirnir að skora ansi mikið, jafnt og þétt allan leikinn. En hraðinn í sóknarleik okkar manna gerir að verkum að mörg opin færi skapast og margar auðveldar körfur fást, ekki síst úr hraðupplaupum og góðu samspili. Jonni fór á kostum í leiknum, báðu megin á vellinum og var afar flinkur við að finna eyður í vörn andstæðinga. AJ fittar nokkuð vel inn í liðið og geysist hratt fram völlinn, bæði með boltann sjálfur og eins þegar einhver annar nær frákasti. Þegar þeir tveir, Jonni og AJ hlaupa hratt fram völlinn og undir körfu andstæðingsins þá er erfitt að verjast og þetta nýtti Keflavíkurliðið sér vel í kvöld.

Arnar Freyr átti margar góðar sendingar (alls 13 stoðsendingar!!) og er hann enn í framför, drengurinn og virðist sífellt lesa leikinn betur. Maggi var með allra rólegasta móti í kvöld, en þeir nafnar Gunnar Einarsson og Stefánsson voru skotvissir. Dóri var einnig góður. Zlatko var hins vegar ekki jafn góður og hann getur verið, virkaði eitthvað ráðvilltur og óöruggur í skotum sínum, en hann er stór og hjálpar liðinu mikið.

Hér má sjá tölur úr leiknum.

Hjá Sköllunum var Jovan mjög góður, eins var nýji Kaninn hittinn í upphafi, en nær ekki að nýta hæð sína í varnarleiknum, t.d. náði AJ yfirleitt að skora gegn honum undir körfunni, þrátt fyrir verulegan hæðarmun. Athyglisvert var að sjá að Skallarnir notuðu leikmann númer 6, Dimitar Karadzovski, en samkvæmt heimasíðu KKÍ þá verður hann ekki löglegur fyrr en 29. október. Það þýðir einfaldlega að Skallagrímur hefði aldrei getað unnið leikinn.

Mikið var dæmt af villum og dregur það úr skemmtuninni fyrir áhorfendur, kannski ekki auðvelt verk fyrir dómara að finna réttu línuna en mikið var dæmt á afar litlar snertingar í þessum leik, báðu megin á vellinum. Kannski það mætti leyfa pínulítið meira til þess að leikurinn fljóti betur, ef svo má segja. Ekki viljum við meina að dómgæslan hafi verið slök eða ósanngjörn, eingöngu að fullmikið hafi verið dæmt af villum sem voru ansi "litlar".

Eftir tvo leiki eru því Íslandsmeistarar Keflavíkur taplausir eins og höfuðandstæðingarnir, Njarðvík og Grindavík. Næsti leikur okkar manna í Iceland Express deildinni er eftir tvær vikur, heimaleikur gegn KR, en í millitíðinni er fyrsta umferð í Hópbílabikarnum gegn Stjörnunni, og tveir útileikir í Evrópukeppninni, í Finnlandi og Lettlandi.