Fréttir

Körfubolti | 3. október 2004

Meistarar meistaranna: Stúlkurnar unnu auðveldan sigur en strákarnir töpuðu stórt

Það var misjafnt gengi liðanna okkar í dag í Meistarakeppni KKÍ. Kvennaliðið vann auðveldan 80-50 sigur á KR-stúlkum, en karlaliðið tapaði stórt gegn Njarðvík, 79-105.

Kvennaleikurinn var eign Keflavíkur allt frá fyrstu mínútu. Stúlkurnar hans Sverris beittu stífri pressuvörn og áttu gestirnir í mesta basli með að stilla upp sóknarleik sínum. Eitt sinn komust þær ekki yfir miðju í fjögur skipti í röð, en slíkt er sjaldséð í körfubolta. Eftir fyrsta leikhlutann var staðan 24-12 fyrir Keflavík og í hálfleik var forystan orðin 23 stig, 47-24.

Reshea, nýji Kaninn í liði Keflavíkur, lék ekki með í þessum leik. Það voru ungu stúlkurnar, María Ben og Bryndís sem voru öflugastar í leiknum, en þær skoruðu 20 og 17 stig. Bryndís tók auk þess 11 fráköst, en Anna María var líka sterk í fráköstunum og hirti 14. Annars komu allar 12 stúlkurnar við sögu í leiknum, þó Birna Valgarðsdóttir hafi leikið minna hlutverk en vanalega. Hún lék aðeins í fjórar mínútur, enda er hún að jafna sig eftir fingurbrot. Bakverðir liðsins stóðu sig vel, Rannveig, Marín og Bára Bragadóttir sem lék stórt hlutverk í meistaraflokksleik.

KR-liðið var frekar dauft, en á eflaust eftir að batna, bæði með tilkomu Kana og eins eiga þær Helga Þorvalds og Hanna Kjartans eftir að ná fyrri styrk. En heilt yfir má segja að klassamunur hafi verið á liðunum í dag og Keflavík vann stórt. Við óskum Sverri og stúlkunum til hamingju með titilinn "meistarar meistaranna".

Hér má sjá tölur úr leiknum.

Strákarnir náðu ekki að fylgja eftir góðum sigri stúlknanna. Njarðvíkingar mættu grimmir til leiks enda hafa þeir á að skipa feyknasterku liði um þessar mundir. Leikurinn var ágætlega leikinn framan af og jafn í fyrri hálfleik. En í þriðja leikhluta var eins og að Njarðvíkingar settu í fluggír en okkar menn hreinlega hættu og létu gestina valta yfir sig á skítugum skónum. Það er orðið langt síðan Keflavíkurliðið hefur verið jafn slakt og í þessum leik, sérstaklega í þriðja leikhluta. Í hálfleik var staðan 48-44 fyrir Keflavík, en í lok þriðja leikhluta var munurinn orðinn 20 stig, 57-77.

Allir leikmenn Keflavíkurliðsins voru slakir og skal enginn nefndur sérstaklega. Það sem var þó mest áberandi var stemmningsleysið og doðinn sem virtist vera yfir liðinu. Einhvern veginn var eins og enginn spenna væri í leikmönnum og að þeir væru hreinlega ekki klárir í erfiðan leik. Njarðvíkingar voru hins vegar grimmir frá fyrstu mínútu og gengu síðan á lagið þegar okkar menn gáfu eftir. Sérstaklega voru þeir Brenton (27 st), Palli (18 st) og Friðrik (20 st, 11fr) illviðráðanlegir og léku okkar menn grátt. Friðrik sýndi á sér sparihliðina í langskotunum og smellti niður þremur þristum í röð og allt virtist ganga upp. Hjá Keflavík var hins vegar ráðaleysið áberandi.

Stemmningin í áhorfendum var einnig lítil, þrátt fyrir að vel væri mætt í húsið, engu líkara var en að áhorfendur væru heima í stofu að horfa á sjónvarp, því ekki heyrðist mikið í þeim. Yfirleitt er liðið vel hvatt og stutt en einhvern veginn voru áhorfendur daufir líkt og leikmenn. Það vantaði líka hjá leikmönnum að sýna baráttu og læti, en slíkt smitar yfirleitt út frá sér.

Kanarnir voru þokkalegir í fyrri hálfleik, sérstaklega Glover, en duttu í bullið með öllum hinum leikmönnunum í seinni hálfleik. Glover setti 23 stig og tók 4 fráköst, Miggins skoraði 11 og hirti 9. Arnar Freyr (12 st) var líklega skástur strákanna og Magnús (11 st, 5 stoð) var ógnandi en skotin duttu ekki (1 af 6 þristum).

Hér má sjá tölur úr leiknum.

Nú er langri og góðri sigurgöngu lokið, því Keflavík hafði unnið 40 leiki í röð á heimavelli áður en að þessum leik kom. Við óskum Njarðvík til hamingju með sigurinn og vonumst eftir því að okkar menn taki sig saman í andlitinu og komi klárir í næstu leiki, en Íslandsmótið hefst á fimmtudaginn.