Fréttir

Körfubolti | 2. nóvember 2003

Mesti troðari í heiminum, Michael "Wild Thing" Wilson, leikmaður Ovarense, er væntanlegur til Kef á miðvikudag !!!

Þegar rýnt er í leikmannalista Ovarense frá Portúgal, kemur í ljós að einn leikmaður þar hefur all sérstakan feril að baki. Það er Michael Wilson, sem léik með Penny Hardaway í Memphis háskólanum en lék síðan frá 1996 til 2002 með Harlem Globetrotters. Þar var hann frægastur fyrir stórkostlegan stökkkraft sinn, sem er engu öðru líkur. Wilson hefur t.d. sett heimsmet, hann hefur troðið á hæstu körfu í heimi, alls 12 fet (eða um 3,62 m.), en venjuleg karfa er 10 fet að hæð (3,05).

Wilson býr yfir ótrúlegum krafti og getur hoppað hærra og troðið flottar en Vince Carter og Kobe Byant. Það verður gaman að fá þennan stökkfugl á fjalir íþróttahússins og fróðlegt að sjá okkar menn takast á við hann.

Þess má geta að eftir 5 umferðir er Ovarense efst í portúgölsku deildinni eitt liða með 4 sigra og 1 tap.