Miðasala á þorrablót Keflavíkur fer vel af stað
Miðasalan fer vel af stað á þorrablót Keflavíkur sem haldið verður 12. janúar n.k. Þorrablótsnefndin hvetur alla keflvíkinga og að sjálfsögðu alla aðra til að tryggja sér miða á þennan frábæra viðburð.
Þorrablót Keflavíkur verður haldið í Íþróttahúsi Keflavíkur við Sunnubraut og opnar húsið kl. 19.00. Þorrablótið Keflavíkur 2012 þótti frábær skemmtun en 2013 mun slá því við!
Til að nálgast miða og/eða til að bóka miða og borð fyrir hópa má hafa samband við Sævar Sævarsson í síma 869-1926. Einnig er hægt að senda tölvupóst á saevar@keflavik.is.
Dagskrá:
Veislustjóri: Jón Björn Ólafsson sér um að stýra veislunni en hann sló svo rækilega í gegn í fyrra að ekki þótti annað hægt en að gefa honum sviðið á nýjan leik.
Rúna Júl syrpa með Memfismafíunni: Guðm. Kristinn Jónsson og Sigurður Guðmundsson munu leiða Memfismafíuna í Rúna Júl syrpu sem frumflutt verður á Þorrablóti Keflavíkur og enginn ætti missa af.
Keflavíkurannáll: Þetta árið verður annállinn fluttur á videóformi en stiklað verður á stóru í bæjar- og íþróttalífi Keflavíkur fyrir árið 2012 með beittum og kómískum hætti.
Baggalútur: Hin þjóðþekkta hljómsveit Baggalútur mun taka við keflinu að borðhaldi loknu og spila sín vinsælustu lög.
Alli "diskó": Kvöldið mun svo enda með alvöru 80´s skífuþeytingum að hætti Alla "diskó" í bland við þekkt 90´s lög og íslenskar perlur.