Fréttir

Körfubolti | 4. október 2004

Miggins á heimleið

Fyrr í kvöld var ákveðið að ganga ekki til samninga við bandaríska leikmanninn Jimmy Miggins sem hafði verið til reynslu hjá félaginu í rúman hálfan mánuð. Jimmy er hæfileikaríkur leikmaður sem stóð sig vel í háskólaboltanum en náði ekki að sína hvað í honum býr með Keflavík. Niðurstaða þjálfara og stjórnar var sú að hann væri ekki sá leikmaður sem liðið þarfnast, sérstaklega þegar horft er til Evrópukeppninnar. Jimmy heldur til Bandaríkjanna á miðvikudaginn. Von er á öðrum leikmanni í staðinn fyrir Jimmy, þótt ekkert sé enn ákveðið í þeim efnum.