Mike Mathews væntanlegur til Kef
Nú stefnir allt í að stór strákur að nafni Mike Mathews komi til Keflavíkur í næstu viku. Mike þessi er hávaxinn, um 2,08, og er mældur 6-10 eða 6-11 í amerískum mælistærðum. Hann kemur frá einum sterkasta háskóla Bandaríkjanna, Florida State, en þaðan útskrifaðist hann fyrr á árinu.
Mike var ekki einn af aðalleikurunum í þessum stóra skóla, heldur var hann vara-miðherji. Sem slíkur þótti hann standa sig vel og þykir sérlega góður frákastari og varnarmaður. Á fjórum árum í háskóla skoraði hann að meðaltali 2-7 stig, tók 2-3 fráköst og varði 1-2 skot. Ahtuga ber að hann lék í sterkustu háskóladeild Bandaríkjanna, ásamt liðum eins og Duke og North Carolina, og má því gera ráð fyrir öflugum leikmanni. Hans besti leikur í fyrra var einmitt gegn Duke, en þá skoraði hann 18 stig og varði fjögur skot.
Mike er ekki fenginn til Keflavíkur sem skormaskína, heldur telja þjálfarar og stjórn að mikilvægt sé að efla vörnina í teignum, eins geti verið heppilegt að fá miðherja til liðsins til að bæta sóknarleikinn. Ef allt gengur að óskum mun Mike koma til landsins um miðja næstu viku.
Hér má lesa meira um Mike Mathews.