Fréttir

Körfubolti | 7. mars 2003

Mikið fjör í síðustu umferðinni – þrenn frekar óvænt úrslit litu dagsins ljós

Keflavík lagði Snæfell og Njarðvík vann Breiðablik, þetta voru úrslit sem flestir áttu von á. En ýmislegt óvænt gerðist í síðustu umferðinni.

Til að byrja með áttu kannski ekki margir von á því að Haukar myndu bursta KR líkt og raun bar vitni að Ásvöllum í gær. Eitthvað hafa KR-ingar misst sjálfstraustið í síðustu umferðum þar sem hvert tapið hefur rekið annað. Þeir náðu stórleik gegn Grindavík á dögunum, en töpuðu hins vegar fyrir Skallagrími og síðan stórt fyrir Keflavík, Njarðvík og nú síðast fyrir Haukum í lok deildarkeppninnar. Á skömmum tíma féllu þeir af toppi deildarinnar og niður í fjórða sætið, það er eitthvað sem enginn átti von á. Ef KR heldur áfram á svipaðri braut verður úrslitakeppnin stutt hjá þeim þetta árið, þar sem Njarðvíkingar eru að finna taktinn með nýjum Kana og eru til alls líklegir. Haukarnir og Stevie “Wonder” Johnson náðu upp góðri baráttu og eru örugglega ánægðir með að þurfa ekki að mæta Njarðvík í úrslitakeppninni, þrátt fyrir að hafa lagt þá grænu fjórum sinnum í vetur.

Eins verður að telja útisigur Tindastóls á ÍR frekar óvæntan, þar sem Stólarnir hafa jú ekki verið þekktir fyrir mikinn styrk á útivöllum í gegnum tíðina. En ÍR-ingum hefur eitthvað fatast flugið á undanförnum vikum og hið unga og spræka lið þeirra hefur gefið verulega eftir. Stólarnir tryggðu sér sjötta sætið með sigrinum og mæta Haukum í fjórðungsúrslitunum. Leikir þeirra hafa verið jafnir í vetur, hvort liðið hefur unnið einn leik, og má því búast við fjörugri viðureign milli Gaflara og Króksara.

Síðast en ekki síst verður að telja sigur Hamars á Grindavík afar óvæntan þrátt fyrir að Lewis og Helgi Jónas hafi verið fjarri góðu gamni. Nýr Kani lék með Grindjánum en gerði engar rósir og Pétur Ingvarsson tók sig til og lék loksins eins og allir vita að hann getur, en hann hefur gert lítið af í vetur. Pétur dreif sína menn áfram sem gerðu sér lítið fyrir og sigruðu Deildarmeistarana og mæta þeim aftur í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. En þrátt fyrir þessi úrslit verður að telja Grindvíkinga afar sigurstranglega í þeirri viðureign. Snæfell og Breiðablik sitja eftir með sárt ennið og Skallagrímur og Valur falla úr úrvalsdeildinni.

Nú er deildarkeppninni lokið og þá hefst fjörið fyrir alvöru. Fjórðungsúrslitin bjóða upp á frábærar viðureignir en þær eru þessar:

  • Grindavík – Hamar
  • Keflavík – ÍR
  • Haukar – Tindastóll
  • KR – Njarðvík

Ef litið er á getu liðanna “ættu” Keflavík og Grindavík að eiga allan séns á að komast áfram, en um hinar tvær viðureignirnar er erfiðara að spá. Hvað svo sem gerist vonum við að körfuboltinn muni blómstra og að áhorfendur muni fjölmenna á leikina og fá mikið fyrir sinn snúð. Meira um það síðar.