Mikil stemmning á Streetballmóti Domino´s
Tólf lið skráðu sig til leiks á fyrsta Ljósanæturmótið í Streetball sem haldið var sl. föstudag af leikmönnum meistaraflokks karla í samstarfi við Domino´s. Keppt var í þremur flokkum og heppnaðist mótið vel. Víkurfréttir gerðu mótinu skil en blaðamaðurinn Eyþór Sæmundsson mætti á svæðið og tók myndir ásamt Magnúsi Þór Gunnarssyni, fyrirliða Keflavíkurliðsins. Afraksturinn má sjá á vef Víkurfrétta; http://www.vf.is/mannlif/gotukorfubolti-i-keflavik/58723