Fréttir

Körfubolti | 25. nóvember 2003

Mikilvægasti leikur haustsins er í dag, miðvikudag, þegar CAB Madeira kemur í heimsókn

Allt virðist geta gerst í B-riðli Vesturdeildarinnar í Bikarkeppni Evrópu. Félögin fjögur (Keflavík, Ovarense, Madeira og Toulon) hafa unnið sinn leikinn hvert og allir hafa leikirnir unnist á heimavelli. Á sama tíma og leikið er í Keflavík mætast Toulon og Ovarense í Frakklandi. Verða Frakkarnir að teljast sigurstranglegri þar, ef þeir leika á svipaðan hátt og gegn okkur fyrir tveimur vikum.

Við gerum ráð fyrir því að mun fleiri leikir vinnist á heimavelli en útivelli í riðlakeppninni. Það er jafnvel hugsandi að allir leikirnir vinnist á heimavelli, en ef slíkt gerðist myndi stigaskor ráða röð í riðli. En hvað svo sem gerist, eru heimasigrar algert lykilatriði til að ná góðum árangri og komast í átta liða úrslit en ekki bara sem áhorfandi.

Þess vegna er leikurinn í kvöld sá mikilvægasti sem Keflavík hefur leikið á þessu keppnistímabili. Með sigri höldum við öllum dyrum opnum en tap kemur okkur í erfiða stöðu. Okkar möguleikar felast nefnilega í því að keyra upp hraðann á heimavelli og hitta vel, slíkur leikur getur komið andstæðingum í opna skjöldu eins og menn hafa séð gerast í Sláturhúsinu um margra ára skeið.

Eins og í öðrum Evrópuleikjum er hæðin meiri hjá andstæðingunum, en pressuvörn og góð hittni ættu að geta vegið það upp, sérstaklega ef baráttan og viljinn eru til staðar. Andstæðingarnir eru líkamlega sterkir og okkar menn þurfa að vera tilbúnir í alvöru átök.

Nate Johnston, sem lék um skeið með Portland í NBA deildinni, er aðal leikmaður Madeira, en auk hans eru margir góðir leikmenn og sérstaklega hefur vakið athygli okkar að þeir hafa verulega góðar 3ja stiga skyttur. Í sigurleiknum gegn Toulon á dögunum hittu þeir t.d. úr 15 af 25 skotum sem er all svakalegt. Okkar menn mega því ekki gefa neinn frið, þeir verða að vera eins og flugur út um allan völl, alls staðar í andlitinu á andstæðingunum. Madeira hefur 6 leikmenn yfir 2 metra, Keflavík hefur 1 (Derrick Allen). Meðalhæð Madeiringa er um 1,96 m en um 1,89 hjá Keflavík. Madeiringar eru aðeins eldri en við, meðalaldur þeirra er 26 og hálft ár, en okkar um 25 ár.

Þessi leikur er mikið tilhlökkunarefni fyrir leikmenn jafnt sem alla stuðningsmenn keflvísks og íslensks körfubolta og vonum við að skemmtunin verði jafn mikil og síðast. ÁFRAM KEFLAVÍK!!