Fréttir

Körfubolti | 7. desember 2004

Mikilvægur leikur í kvöld

Keflavík mætir sem kunnugt er Danska liðinu Bakken Bears í kvöld.  Strákarnir er nú í Árósum að gera sig tilbúna fyrir leikinn sem hefst kl 18.30 að Íslenskum tíma.  Það er að heyra á þeim að þeir séu tilbúnir að leggja hart að sér í leiknum á eftir og vinna Danina.  Ekkert annað kemur til greina.  Lið Bakken hefur verið að leika vel í Dönsku deildinni og varð  Bikarmeistari um daginn.  Svo verkefnið er verðugt. Leiknum verður lýst beint hér á síðunni og er nokkuð ljóst að margir Keflavíkingar sitja spenntir við tölvuna í kvöld.

Hér eru nokkrar myndir í viðbót frá Frakklandi.