Fréttir

Körfubolti | 19. september 2004

Mikilvægur sigur á Rúmenum í Keflavík í kvöld

Líkt og gegn Dönum um daginn byrjaði íslenska liðið af krafti í leiknum í kvöld. Jón Arnór hóf leikinn af miklum krafti og Friðrik Stefánsson var öflugur, bæði í vörn og sókn. Páll Axel setti niður glæsilegan þrist í lok leikhlutans og Ísland náði 12 stig forskoti, 28-16. Vel var mætt í Sláturhúsið og rúmlega 800 áhorfendur létu vel í sér heyra undir vaskri forystu Torfa bróður og Trommusveitarninnar úr Kef.


Fín stemmning var á leiknum. Mynd fengin að láni hjá www.vf.is

En líkt og gegn Dönum missti liðið taktinn, ef svo má segja, í öðrum leikhluta og forystan hvarf hægt og rólega. Í hálfleik var munurinn aðeins tvö stig, 40-38. Seinni hálfleikur hófst af krafti hjá gestunum sem náðu yfirhöndinni í leiknum með góðri svæðisvörn og öguðum sóknarleik. Þar fóru fremstir í flokki miðherjinn Stanesku (nr. 4, 13 stig) og framherjinn Apostol (nr. 12, 15 stig). Þegar aðeins einn leikhluti lifði leiks var forysta Rúmena orðin fjögur stig, 58-62, og útlitið ekki bjart.

Í fjórða leikhluta fóru loks hlutir að gerast að nýju hjá íslenska landsliðinu. Helgi, Páll og Magnús settu niður þrista og vörnin fór að virka betur. Það fór í skapið á gestunum sem fengu m.a. dæmdar á sig óíþróttamannslega villu og tæknivillu. Magnús var öruggur á vítalínunni og nýtti öll sex vítin sem hann fékk. Hlynur Bæringsson og Jakob Sigurðsson sem verið hafa jafnbestu leikmenn landsliðsins í sumar, létu minna fara fyrir sér í kvöld, en það kom ekki að sök.

Hægt og rólega færðist stemmingin yfir til Íslendinga og stuðningurinn varð háværari með hverri mínútunni. Helgi Magnússon var hreint frábær í síðasta leikhluta og Jón Arnór var duglegur að keyra inn í vörnina og finna samherja sína. Eins átti Fannar mjög góðan sprett, bæði í vörn og sókn. Ísland komst yfir í stöðunni 63-62 og eftir það litu drengirnir aldrei um öxl. Munurinn jókst stig af stigi síðustu mínúturnar og á endanum var hann sex stig, 79-73.

Sigurinn var afar mikilvægur þar sem nú er enn allt opið fyrir landsliðið að komast upp úr B-deildinni, en það er yfirlýst markmið liðsins. Danir hafa unnið báða sína leiki, Ísland einn og Rúmenía engan. Næsti leikur Íslands í Evrópukeppninni er eftir tæpt ár þegar Danir koma í heimsókn.

Helgi Magnússon var stigahæstur íslensku strákanna með 16 stig, en hér má sjá tölur úr leiknum.