Mikilvægur sigur í fyrsta leik eftir töluvert basl
Fyrsti leikur Keflavíkur og Grindavíkur í undanúrslitum í kvennaboltanum fór fram í kvöld. Leikurinn bar þess merki að vera mikilvægur því hraður sóknarleikur þurfti að víkja fyrir hörðum varnarleik beggja liða. Reyndar er saga leiksins sögð í örfáum orðum - Keflavík náði fljótt forystu, þetta 4 - 10 stigum og hélt henni út allan leikinn.
Vörn Keflavíkur gegn Kesha Tardy var þétt og góð því ávallt voru a.m.k. tvær stúlkur nærri þegar hún fékk boltann. Enda skoraði Tardy aðeins 10 stig, en það þykir frekar lítið á þeim bænum. Í staðinn opnaðist aðeins meira fyrir skyttur Grindvíkinga sem náðu nokkrum góðum skotum. En heilt yfir var vörnin góð. Þær Sólveig og Ólöf voru sprækar hjá gestunum. Ólöf er geysiöflugur leikmaður sem býr yfir miklum krafti og Sólveig átti nokkur ótrúleg skot í leiknum, því í þrígang skoraði hún úr erfiðu skoti um leið og 24ra sekúndna klukkan rann út.
Sóknarmegin gekk hins vegar spilamennskan hjá Keflavíkurkonum ekki jafn vel. Anna María (18 stig) var reyndar hittin og ógnaði jafnt innan teigs sem utan 3ja stiga línunnar, en aðrar voru frekar rysjóttar. Erla Þ (8 stig) átti erfitt uppdráttar gegn Tardy í byrjun, en bætti sig eftir því sem á leikinn leið. Erla R (10 stig) byrjaði með miklum miklum krafti en hætti síðan að leita að eigin skoti, sem var miður. Birna (11 stig) átti nokkrar góðar keyrslur inn í vörnina og setti mikilvægan þrist á lokasprettinum, en hún var líka svolítið utan gátta í sóknarleiknum. Stíf vörn gestanna gerði að verkum að okkar stúlkur duttu út leikkerfunum og gerðu sig seka um afar mörg mistök, allt of mörg. Eins verður að segja að þær sóttu ekki nægjanlega inn í teig gestanna í sóknarfráköstin, en þær hefðu örugglega geta bætt stigaskorið með nokkrum sóknarfráköstum. Keyrslan var heldur ekki sannfærandi, en þær verða líka að geta keyrt upp og síðan hægt ef ekkert frítt skot er að fá.
Erla í baráttunni (mynd fengin að láni hjá VF.IS)
Aðalatriðið er þó að forystan hélt allan leikinn og nú er staðan 1-0 fyrir Keflavík. Stúlkurnar eiga mikið inni og geta leikið mun betur, sérstaklega í sókninni. Næsti leikur er á miðvikudagskvöldið í Grindavík og þar hafa þær kjörið tækifæri til að ljúka einvíginu, því það lið sem fyrr sigrar í tveimur leikjum kemst í úrslitin gegn annað hvort KR eða ÍS.