Fréttir

Karfa: Yngri flokkar | 27. nóvember 2007

Minni bolti stúlkna 10. ára var að keppa á Sauðarkróki

Stelpurnar stóðu sig rosalega vel og unnu báða leikina frekar létt en það var ekkert auðvelt að skella sér beint á völlinn eftir 5 tíma rútuferð og spila tvo leiki í röð.  Þetta aftraði þeim ekki frá því að taka þetta með glans og má Keflavíkurkarfan vera stolt af þeim.

Leikar fóru:

Keflavík – Njarðvík  38 – 17
Keflavík – Tindastóll  42 – 9

Þær sem tóku þátt að þessu sinni voru: Lovísa Ósk, Elfa, Katla Rún, Kristrós Björt, Laufey Rún, Svanhvít Ósk, Kristrún, Steinunn, Andrea, Írena Sól, Daníella og Þórdís Elsa. 
Tinna Rún, Thelma Dís, Ásta Sólilja og Guðríður Emma voru fjarri góðu gamni en koma vonandi sterkar inn næst.

Stigaskor:

Kristrún           36
Laufey Rún     34
Írena Sól         4
Elfa                 2
Steinunn          2
Svanhvít Ósk  2

Þjálfari var Margrét Sturlaugsdóttir og fararstjóri Helga Björg Helgadóttir og þakka þær stelpunum fyrir skemmtilega og árangursríka ferð