Fréttir

Körfubolti | 31. júlí 2005

Minnibolti Stúlkna á Delfin Basket

Á mánudagsmorgun halda íslandsmeistararnir í minnibolta stúlkna frá því í vor í keppnisferð til Tampere í Finnlandi.  Þar munu stúlkurnar keppa á Delfin Basket, alþjóðlegu körfuboltamóti fyrir börn og unglinga.  Eftir mótið sem stendur yfir dagana 3-7. ágúst munu stúlkurnar ásamt fylgdarliði skoða sig um og skemmta sér í Helskinki áður en haldið verður heim til Íslands þann 10. ágúst.

Við munum færa fréttir af stúlkunum hér á heimasíðunni á meðan ferðinni stendur, einnig er hægt að nálgast úrslit og aðrar upplýsingar á heimasíðu mótsins www.delfinbasket.com


Efsta röð f.v.:  Árný Sif, Sigrún, María Ben, Birgitta, Sigrún Ásta og Hrafnildur Rósa
Miðröð f.v.:  Helen María, Telma Lind, Hilda Mar, Lovísa, Kristjana Vigdís og Helena Ösp
Fremsta röð f.v.:  Sara Dögg, Kristjana Eir, Eva Líf, Erna og Emelía