Minningarleikur um Gunnhildi Líndal á morgun miðvikudag, kl. 19.15
Sá hörmulegi atburður gerðist fyrir 5 árum, að Gunnhildur Líndal lést í bílslysi á Grindavíkurvegi. Gunnhildur lék á þeim tíma körfubolta með Keflavík. Til að halda minningu Gunnhildar á lofti var ákveðið að Keflavík og Grindavík myndu árlega leika minningarleik í körfubolta.
Nú á morgun, miðvikudag, verður minningarleikurinn um Gunnhildi leikinn í fimmta sinn. Hefst hann kl. 19.15 og eru allir körfuboltaáhugamenn og -konur hvattir til að mæta.
Keflavík og Grindavík hafa leikið nokkra skemmtilega leiki á þessu tímabili og þótt að sigurinn sé ekki allt sem skiptir máli í þessum leik, má búast við harðri keppni og góðri skemmtun, enda liðin bæði að búa sig undir úrslitakeppnina.