"Mjög erfiður leikur" sagði Guðjón þjálfari Skúlason
Heimasíðan náði tali af Guðjóni eftir leikinn í kvöld og spurði hann fregna. Hann sagði að vörn Ovarense hefði verið afar sterk allan tímann. Þeir hefðu lagt ofurkapp á að stoppa Magga, Gunna og Fal og það tókst, enda komust þeir upp með að leika mjög stíft, jafnvel gróft. Guðjón sagði að ekkert hefði verið auðvelt og að fá sem engin frí skot hefðu fengist framan af leiknum. Auk þess hefði hæðin nýst heimamönnum vel undir körfunum, Wilson afar sterkur.
Guðjón sagði að Arnar hefði verið sá eini sem náði að keyra fram hjá sínum manni og þannig tókst honum að opna vörnina og skapa sér og félögum sínum færi. Guðjón sagði einnig að vörn okkar hefði ekki verið jafn grimm og þeirra í byrjun leiks og þess vegna hefðu þeir náð forskoti sem við náðum aldrei að jafna aftur.
Guðjón sagði að Ovarense hefði í lokin lagt alla áherslu á að reyna að koma forskotinu upp fyrir 14 stig og þeir hafi tekið mikið af 3ja stiga skotum sem ekki gengu upp. Þjálfarinn var ósáttur við tapið, sagði að okkar menn hefðu þurft að mæta grimmari til leiks, en hann var þó sáttur með að hafa sigur í innbyrðis viðureign liðanna, þar sem við unnum með 14 á okkar heimavelli, en þeir með 6, þannig að við eigum 8 stig í plús, sem telst okkur til tekna ef liðin verða jöfn í riðlinum.
Að lokum sagði Guðjón að nú væri bara eitt mál á dagskrá, að vinna Madeira. Menn þyrftu að vera búnir undir slagsmál frá fyrstu sekúndu og mættu ekki láta grimma vörn koma okkur úr jafnvægi aftur.