Morgunæfingar hefjast á morgun fyrir 8. bekk og eldri
Morgunæfingar hefjast á morgun, þriðjudag og verður æft frá kl. 6.40 - 7.30. Æfingarnar verða öllum opnar í 8. bekk og eldri og og það kostar ekki neitt nema gott hugarfar að láta sjá sig. Allir áhugasamir iðkendur sem vilja leggja aukalega á sig eru hvattir til að nýta gott tækifæri til að hámarka sinn árangur en þessar æfingar slógu í gegn á s.l. tímabili og voru vel sóttar.
Morgunæfingarnar fara fram á;
Þriðjudögum kl. 06.40-07.30
Fimmtudögum kl. 06.40- 07.30
Takið nú morgundaginn snemma ágætu iðendur og mætið spræk upp á Sunnubraut.
Barna- og unglingaráð KKDK