Morgunæfingar hefjast á nýjan leik
Morgunæfingar hefjast eftir helgi og verður æft líkt og fyrir áramót, á mánu- og miðvikudags morgnum frá kl. 6.40 - 7.30. Fyrsta æfing verður n.k. mánudag 17. jan. Æfingarnar eru öllum opnar í 8. bekk og eldri og það kostar ekki neitt nema gott hugarfar að láta sjá sig. Allir áhugasamir iðkendur sem vilja leggja aukalega á sig eru hvattir til að nýta gott tækifæri til að hámarka sinn árangur. Þjálfari á morgunæfingunum verður Einar Einarsson og honum til aðstoðar hinn alræmdi morgunhani Hörður Axel Vilhjálmsson. Æfingarnar eru sem fyrr segir opnar öllum iðkendum í 8. bekk og eldri og það kostar ekki neitt nema gott hugarfar að láta sjá sig.
Byrjið nú mánudaginn af krafti ágætu iðendur og mætið með sparibrosið á Sunnubrautina.
Unglingaráð KKDK