Fréttir

Karfa: Yngri flokkar | 10. október 2010

Morgunæfingar hefjast fyrir 8. bekk og eldri

Morgunæfingar hefjast eftir helgi og verður æft á mánu- og miðvikudags morgnum frá kl. 6.40 - 7.30.  Fyrsta æfing verður n.k. miðvikudag 13. okt.. Æfingarnar verða öllum opnar í 8. bekk og eldri og þátttakendum alveg að kostnaðarlausu. Allir áhugasamir iðkendur sem vilja leggja aukalega á sig eru hvattir til að nýta gott tækifæri til að hámarka sinn árangur. Þjálfari á morgunæfingunum verður Einar Einarsson og honum til aðstoðar Hörður Axel Vilhjálmsson.

Takið nú miðvikudaginn snemma ágætu iðendur og mætið spræk upp á Sunnubraut.

Unglingaráð KKDK