Fréttir

Morgunverðarhlaðborð KKDK á Ljósanótt
Körfubolti | 3. september 2015

Morgunverðarhlaðborð KKDK á Ljósanótt

Hið árlega morgunverðarhlaðborð körfuknattleiksdeildar Keflavíkur hefur orðið að árlegum viðburði á Ljósanótt og í ár verður engin undantekning. Hlaðborðið verður í TM - höllinni á laugardaginn milli 10 og 13.

Á boðstólum verður meðal annars egg, bacon, pylsur, rauðar baunir, vöfflur, brauð og álegg ásamt glæsilegu ávaxtaborði.

Tilvalið fyrir alla gesti Ljósanætur, bæði heimamenn sem og gesti, að kíkja við fyrir árgangagöngu og fá sér morgunmat og kaffi.

Verð eru: 
5 ára og yngri = frítt
6 - 12 ára = 750 kr.
13 ára og eldri = 1.500 kr.