Mót helgarinnar 29.og 30.okt.
Minnibolti drengja léku sitt fyrsta fjölliðamót í Rimaskóla.Þeir léku í A-riðli þar sem minniboltalið Keflavíkur frá í fyrra endaði þar.
Eitt lið féll þar úr keppni og leikirnir urðu þ.a.l. einungis þrír, við Fjölni, Breiðablik og Njarðvík. Leikirnir töpuðust allir þó drengirnir hafi leikið ágætlega á köflum. Þeir munu því leika í b-riðli í næsta móti sem fram fer í janúar á næsta ári.
9.flokkur drengja fór í DHL höllina og lék sitt annað mót og vorum við nokkuð spennt að fyljgjast með hvort þeir næðu að fylgja eftir frábæru gengi í fyrsta mótinu sem fram fór í Njarðvík. Þar voru drengirnir rétt búnir að tryggja sér sæti í A-riðli. Allt annað lið mætti nú í DHL höllina og töpuðust allir nema einn leikur og þurfti stigaútreikninga til að fá úr því skorið hvort Keflavík, Hrunamenn eða KR myndu falla og voru Hrunamenn með lakasta mismun skoraðra stiga og stiga sem þeir fengu á sig og fara því að öllum líkindum niður í c-riðil.
8.flokkur kvenna brá sér í Grindavík og lék þar í b-riðli. Keflavik er þar með tvo lið, en 7.flokkur félagsins leikur sem Keflavik b þar. Svo fór á endanum að Keflavík A unnu mótið og munu því leika í a-riðli í næsta móti. Keflavik b eða 7. flokkurinn lenti í öðru sæti í mótinu. Hörku rimmar var á milli Keflavíkurliðanna í mótinu þar sem stúlkurnar í 8.flokki unnu stúlkurnar í 7. flokki með þremur stigum, og munaði minnstu að 7.flokkurinn hefði jafnað úr þriggja stiga skoti í lok leiksins.
Næstu helgi 5.og 6. nóv. munu nokkrir flokkar keppa, en 10.flokkur drengja mun leika sitt b-riðilsmót hér í Keflavik. Fyrri dagurinn í í mótinu fer fram á Sunnubrautinni en seinni dagurinn upp í Heiðarskóla.
10.flokkur kvenna fer á Ásvelli í Hafnarfirði og leikur í a-riðli.
7.flokkur drengja fer í Borgarnes og tekur þátt í sínu öðru a-riðils móti í vetur.
7.flokkur kvenna fer í Njarðvík í a-riðil og b-lið þeirra fer í Hagaskóla þar sem b-riðillinn fer fram.
Minnibolti 10 ára er skráður í 2.deild minniboltans og fara þeir í Kennaraháskólann í sitt fyrsta mót á sínum ferli.