Fréttir

Körfubolti | 11. desember 2004

Myndir af Keflavíkurstelpum

Keflvíkurstelpur fóru í æfingaferð til Danmerkur fyrir tímabilið og var hún bæði skemmtileg og lærdómsrík.  Ferðinn var m.a farinn til að þjappa manskapnum saman fyrir komandi leiktíð.  Inn í liðið voru að koma nokkrar ungar og efnilegar stelpur úr yngri flokkum, nýr erlendur leikmaður Rashea Bristol og svo nýr þjálfari Sverrir Þór Sverrisson.  Það má sjá að ferðinn skilaði sér vel enda hópurinn mjög samstiltur og hefur liðið leikið frábærlega á þessari leiktíð.  Það hefur verið hrein unnun að sjá liðið spila allar vita sitt hlutverk og greinlegt að Sverrir er að gera góða hluti með liðið. Hér koma nokkrar myndir sem teknar voru úr æfingaferðinni.