Myndir úr Frakklandsferðinni
Hér eru fjórar góðar myndir úr ferðinni til Toulon. Fyrst var flogið til London og þar þurfti mannskapurinn að skipta um flugvöll. Síðan var haldið til Marseilles og rúta tekin til Toulon. Mæting í Leifsstöð var kl. 7 um morguninn og komið var að Hótel Mercure um kl. 20.30 um kvöldið, eftir 13 og hálfs klst. ferðalag.
Maturinn var fínn allan tímann og aðbúnaður góður. Frakkarnir tóku vel á móti íslenskum gestum sínum. Sem dæmi má nefna að formanninum var færður kassi með sex forláta rauðvínsflöskum úr héraðinu. Sá böggul fylgdi hins vegar skammrifi að hann þurfti að borga stórfé fyrir að koma flöskunum til landsins.
Höllin sem keppt var í, Espace 3000, er nokkurs konar fjölnotahöll og setja þarf upp gólfið sérstaklega fyrir körfuboltaleiki, það tekur um hálfan dag! Höllin tekur um 2000 manns í sæti og eru að meðaltali 15-18 hundruð manns á leik. Þeir sögðu hins vegar að aldrei fengist góð aðsókn á kvöldleiki í miðri viku og því var ekki fullt hús á okkar leik, heldur tæplega hálffullt.
Eftir góða nautasteik að leik loknum og skinku-breakfast á föstudeginum var haldið tilbaka með rútu til Marseilles og flogið til London Gatwick. Rúta þaðan til Heathrow og síðan fóru menn til London Town í nokkra klukkustundir, ýmist til að versla, skoða sig um eða dreypa á kaffibolla. Flogið var frá London um kl. 21 og lent í Keflavík rétt fyrir miðnætti.
Almennt tókst ferðin vel, enda fararstjórn í öruggum höndum Gunnars Jóhannssonar fararstjóra og aðstoðarmanns hans Fals Harðarsonar, skjalavarðar og aðstoðarfararstjóra. Mikið var spilað á spil, svokallað Phase10 spil sem er eins konar amerísk útgáfa af rommí. En heilt yfir má segja að Keflavíkurdrengir hafi staðið sig með vel og verið félagi sínu og landi til sóma í ferðinni, jafnt innan vallar sem utan.
Derrick og Gunar nýttu flugferðina til að hvíla lúin bein
Stjórnin og þjálfarinn að snæðingi við "háborðið" á hótel Mercure
Bæjarstjórinn, Árni Sigfússon og forstöðumaður skipulags- og umhverfismála, Viðar Már Aðalsteinsson, voru meðal áhorfenda, líkt og Stefán Bjarkarson, framkvæmdastjóri Menningar-, íþrótta- og tómstundasviðs Reykjanesbæjar. Sá sem situr fyrir framan þá Árna og Viðar á myndinni er Brynjar Sigmundsson, sá hinn sami og gerði garðinn frægan með Njarðvíkurliðinu hér á árum áður. Hann býr í Valence og brá sér á leikinn. Líklega í fyrsta skiptið sem hann hefur haldið með Keflavík . . .
Hér sést Guðjón þjálfari tala við sína menn í leikhléí