Fréttir

Körfubolti | 14. október 2004

Næsti deildarleikur

Næsti deildarleikur er á móti Snæfell.  Lið Snæfels var deildarmeistari á síðasta tímabili og vann Hamar 2-0 í 8 liða úrslitum.  Í undanúrlsitum unnu þeir svo nágranna okkar úr Njarðvík 3-0 . Úrslitaeinvígið var svo á milli okkar og Snæfels. Leikirnir voru hin besta skemmtun og mjög spennandi. Snæfell vann fyrsta leikinn 80-76 í Stykkishólmi.  Næsti leikur var svo í Keflavík og unnu við þann leik 104-98.  Þriðji leikurinn var svo aftur í Hólminum og þann leik unnu við 79-65.  Á þeim leik var mikill fjöldi stuðningsmanna Keflavíkur og stemming frábær. Lokaleikurinn í einvíginu var svo í Sláturhúsinu við Sunnubraut og unnu við hann með 20 stiga mun 87-67 og urðum Íslandsmeistarar eins og allir vita. Lið Snæfels er að mestu skipað sömu leikmönnum og á síðasta tímabili.  Þeir eru þó heldur búnir að bæta í því þeir eru komnir með Pálma frá Breiðarbliki og Ingjald frá Kr. Svo eru þeir búnir að fá sér tvo kana sem lítið er vitað um. Leikurinn fer fram á sunnudaginn kl 19:15 á Stykkishólmi.  Fyrsti heimaleikurinn á tímabilinu er svo á móti Haukum á fimd 21 okt. kl 19:15.