Fréttir

Karfa: Karlar | 18. janúar 2008

Næstu leikir á miðvikudag og fimmtudag

Keflavík mætir Grindavík í dag miðvikudag í Iceland Express deild kvenna og geta með sigri endurheimt toppsætið.  Grindavík er efst með 24. stig eftir 15. leik en okkar stelpur eru með 22. stig eftir 14. leik. Leikurinn á miðvikudag er því mjög mikilvægur og kannski ágætis æfing fyrir bikarslaginn sem verður 2 eða 3. febrúar.  Stigahæst í vetur er Kesha en hún hefur leikið frábærlega, er með 27.7. stig, 83 % vítanýtingu 8 fráköst og 7. stoðsendingar.

Strákarnir halda norður yfir heiðar á morgun fimmtudag og mæta Þór frá Akureyri. Sá leikur verður einnig mjög erfiður enda Þórsarar vera að spila vel á heimavelli í vetur. Þórsarar sigruðu í síðasta leik sínum þar er þeir lögðu Grindvíkinga 104-98.  Keflavík er með 4. stiga forustu á toppnum en Þór er með 10. stig þi 7-10. sæti deildarinnar. Cedric Isom er stigahæstur með 27. stig og næstir koma Luka Marolt og Óðinn Ásgeirsson með 15. stig.