Fréttir

Körfubolti | 18. desember 2002

Nágrannaslagur í Bikarkeppni kvenna í kvöld

Keflavíkurstúlkur eru enn ósigraðar í 13 viðureignum vetrarins og við vitum að þær munu gera allt sem í þeirra valdi stendur til að framlengja sigurgönguna um a.m.k. tvo leiki. Tveir næstu leikir eru nefnilega útsláttarleikir, þeir sem tapa eru úr leik. Seinni leikurinn af þessum tveimur er á laugardaginn, þann 21. des. gegn KR í úrslitum Kjörískeppninnar í Smáranum, en fyrst er að huga að leik kvöldsins, Bikarleik gegn Njarðvík í 16 liða úrslitum.

Keflavíkurliðið hefur haft mikla yfirburði það sem af er vetri og því má ljóst vera að andstæðingarnir leggi allt kapp á að kortleggja leik liðsins til að vera sem best undirbúnir í slaginn. Keflavíkurstúlkur þurfa því sífellt meira að hafa fyrir hlutunum, en einhvern veginn hefur þó leikur liðsins tekið stöðugum framförum eftir því sem á líður. Lykillinn að góðu gengi er ekki síst góður andi og öflugur varnarleikur. Ef hvoru tveggja er til staðar í kvöld ættu okkar stúlkur að eiga góðan möguleika á sigri.