Nate Johnston, fyrrum leikmaður Portland Trailblazers, er besti leikmaður portúgalska liðsins CAB Madeira (update)
Næsti Evrópuleikur hjá Keflavík er á miðvikudaginn. Þá kemur félagið CAB (Clube Amigos do Basquete) frá eyjunni Madeira í heimsókn. Madeira hefur, líkt og Keflavík, unnið einn og tapað einum í Vesturdeildinni. Þeir komu á óvart, líkt og við, í fyrstu umferðinni, þegar þeir lögðu franska liðið HTV Toulon með um 20 stiga mun. Fyrirfram var búist við því að þessi tvö félög, Keflavík og Madeira, myndu kljást um þriðja sætið í riðlinum sem gefur líklega rétt á áframhaldandi þátttöku. En eftir tvær umferðir er allt jafnt og allir fjórir leikirnir hafa unnist á heimavelli. Á miðvikudag taka Frakkarnir í Toulon á móti Ovarense frá Portúgal í hinum leik riðilsins. Það er okkar spá að Frakkarnir fari þar með sigur af hólmi.
Í dag, laugardag, etur CAB kappi við Olivaerense í portúgölsku Liga TMN deildinni. (Olivarense leikur í A-riðli Vesturdeildarinnar í FIBA keppninni.) Sá leikur skiptir miklu máli fyrir CAB, ef þeir vinna þá hífa þeir sig upp í miðja deild, en ef þeir tapa verða þeir við botninn áfram. Deildin virðist þó ótrúlega jöfn, en þó hefur Ovarense enn forystu eftir 9 umferðir, hefur unnið 7 og tapað 2. Alls eru liðin 12 í deildinni.
En víkjum nánar að CAB. Liðið er sem stendur í neðri hluta deildarinnar í portúgal, en deildin er ansi jöfn. Þeir hafa tvisvar leikið gegn Ovarense og í bæði skiptið tapað. Þeirra helsti stigaskorari er Nate nokkur Johnston sem marga fjöruna hefur sopið í körfuboltaheimunum. Drengurinn sá er orðinn 36 ára en er atvinnumaður í topp klassa. Hann á skrautlega feril að baki en m.a. hefur hann verið á samningi við tvö NBA félög, Utah Jazz og Portland Trailblaizers en þar lék hann ríflega 20 leik leiktíðina 1989-90. Hann var valinn í nýliðavalinu árið 1988 í þriðju umferð af Miami Heat. Viðvera hans í NBA var ekki löng, en hann hefur verið atvinnumaður í körfubolta alla sína tíð og leikið víða um heim, mikið á suðrænum slóðum, t.d. á Spáni og Argentínu. Einnig hefur hann leikið í CBA. Alls hefur hann leikið með um 25 félögum (!!) í 8 löndum síðan hann útskrifaðist úr Tampa háskólanum 1988. Nate er hávaxinn framherji, um 2,07 á hæð og er aðalskorari þeira Madeiringa, gerir um 20 stig í leik.
Hinn síungi Nate Johnston
Leikmenn liðsins eru sem hér segir:
Nr | Nafn | Staða | Hæð | Þyngd | Fæðingarland |
Seco Camará | B/F | 1,95 | 27 | Portúgal | |
Diogo Teixeira | F | 2,03 | 17 | Portúgal | |
4 | Ken Leeks | M | 2,05 | 34 | Bandaríkin |
5 | Miguel Pichardo | M | 2,00 | 23 |
Dóm. lýðveldið |
7 | Pedro Freitas | B | 1,80 | 21 | Portúgal |
8 | Pablo Gimenez | F | 2,02 | 34 | Argentína |
9 | Lisard Termens | F | 2,02 | 32 | Spánn |
10 | Francisco Fernandes | B | 1,90 | 23 | Portúgal |
11 | José Marcos | B | 1,87 | 25 | Spánn |
12 | Goncalo Abreu | F | 1,87 | 25 | Portúgal |
14 | Nathaniel Johnston | F | 2,07 | 36 | Bandaríkin |
15 | Mário-Gil Fernandes | B | 1,74 | 31 | Portúgal |
Þess má geta að núverið bættist portúgalski landsliðsmaðurinn Pedro Nuno í hóp CAB, en hann skiptir frá Porto. Nuno er bakvörður, um 1,90 á hæð og hefur þegar styrkt liðið, enda hefur hann skorað 35 stig í þeim tveim leikjum sem hann hefur tekið þátt í. Óvíst er hvort hann leiki með á miðvikudaginn
Hér má finna góðar upplýsingar um CAB, statistik og alles.
Hér má sjá tölur leikmanna úr tveim fyrstu leikjum CAB í Evrópukeppninni.
NOKKRAR UPPLÝSINGAR
- Stigahæstir í FIBA EUROPE CUP eru Johnston (20 að meðaltali) og Fernandes (16), aðrir stigaskorarar eru Pichardo (14), Termens (14), Marcos (13) og Ken Leeks (11)
- Stigahæstir í portúgölsku deildinni (Liga TMN): Johnston (19), Nuno (18) og Marcos (17)
- Flestar mínútur í FIBA hafa leikið: Termens (36), Johnston (34) og Fernandes (33)
- Flestar mínútur í Liga TMN hafa leikið: Marcos (38), Johnston (35), Termens (31) og Nuno (28)
- Flest fráköst í FIBA hafa tekið: Johnston (8 að meðaltali) og Termens (6)
- Flest fráköst í Liga TMN hafa tekið: Johnston (9) og Leeks (5)
- Bestu 3ja stiga skytturnar í FIBA eru: Fernandes (8 af 11 !), Johnston (6 af 10) og Termens (5 af 12) - auk þess er Pedro Nuno mjög góð skytta
- Liðið virðist hafa ágætis breidd, því 8 leikmenn hafa tekið verulegan þátt í Evrópuleikjunum tveimur og síðan hefur Nuno bæst við
- Þeir hafa einnig mjög sterkar og skæðar skyttur innanborðs, liði hittir úr 43% skota sinna
- Samkvæmt "EFC" reiknireglu Portúgalanna er Johnston besti maður liðsins (með einkunnina 21,3), síðan kemur Marcos (19,6) og svo nýi leikmaðurinn Pedro Nuno (16,3).