Fréttir

Karfa: Karlar | 30. nóvember 2007

Naumur sigur á Tindastól

Keflavík sigraði Tindastól í 9. umferð Iceland Express-deildar naumt, 87-89. Góð umfjöllun er um leikinn á tindastóll.is sem við fáum lánaða.

Tindastóll og Keflavík mættustu í gærkvöldi í Iceland Express deild karla á Sauðárkróki. Þetta voru toppliðið og liðið í 10. sæti og mátti því kannski búast við auðveldum sigri gestanna. Svo varð nú ekki raunin og leikurinn lengst af nokkuð  jafn.

Byrjunarlið heimamanna var nokkuð hefðbundið; Donald, Samir, Svavar, Ísak og Serge. Keflvíkingar byrjuðu með Arnar, Jón Norðdal, Antony, Tommy og B.A. Walker inná. Magnús Þór Gunnarsson var fjarri góðu gamni, en hann var í fríi erlendis.

Keflavík byrjaði leikinn með því að skora fimm fyrstu stig leiksins, en eftir það voru liðin samsíða langt fram í fyrsta leikhluta. Í stöðunni 16-16 tóku Keflvíkinga góðan sprett og komu muninum í 7 stig fyrir lok fyrsta fjórðungs, en staðan að honum loknum var 19-26. Walker fór mikinn í leikhlutanum fyrir gestina en hann skoraði þá 12 stig, en Donald skoraði mest fyrir Tindastól eða 9 stig. 

Keflvíkingar héldu áfram þar sem frá var horfið í öðrum leikhluta og komu muninum uppí 10 stig. Í stöðunni 27-37 og fimm mínútur eftir af hlutanum hrukku heimamenn í gang og skoruðu 18-8 á Keflavík fram að hléi og jöfnuðu leikinn. Staðan í hálfleik 45-45. Donald kominn með 17 stig fyrir Stólana og Walker áfram stigahæstur Keflvíkinga með 15 stig. 

Tindastóll komu sterkir til leiks eftir hlé og náðu sér í 6 stiga forskot í stöðunni 56-50. Þá sögðu Keflvíkingar hingað og ekki lengra, jöfnuðu leikinn 60-60 og voru komnir með tveggja stiga forskot þegar aðeins síðasti fjórðungur var eftir, 62-64. Leikurinn hélst í jafnvægi fyrstu fjórar mínútur fjórða fjórðungs, en í stöðunni 72-75 kom kafli óþarfa villna og tapaðra bolta hjá Tindastóli og Keflavík seig framúr og staðan 74-84 þegar rúmar þrjár mínútur til leiksloka. Keflavík sigldi síðan til sigurs og þó munurinn væri aðeins tvö stig í lokinn var sigur þeirra nánast aldrei í hættu. Svavar minnkaði að vísu muninn í fjögur stig með þriggja stiga körfu þegar rúm mínúta var eftir, 85-89.

Arnar klikkaði á fjórum vítum fyrir Keflavík á síðustu mínútunni, en Stólarnir náðu ekki að nýta sér það og Halli skoraði síðustu körfu leiksins fyrir Tindastól þegar tvær sekúndur voru eftir og lokastaðan 87-89. Gunnar Einarsson og Arnar Freyr fóru mikinn í síðasta fjórðungi fyrir Keflavík, en Gunnar skoraði tíu stig og Arnar 6. Arnar klikkaði reyndar á  6 vítum í leikhlutanum, en það kom ekki að sök eins áður er sagt. Hjá Tindastóli barmest á Donald en hann var með 31 stig. Svavar og Samir áttu góðan leik, Ísak skilaði sínu að vanda og Helgi Rafn kom með mikla baráttu inn í leikinn eins og hans er vani.

Stigaskor Tindastóls: Donald 31, Svavar 18, Samir 17, Serge 7, Ísak og Helgi 6 ogHalli 2. 

Hjá Keflavík skiptust stigin þannig: Tommy 21, Gunnar 17, Walker 17, Arnar 12, Jón11, Sigurður 6 og Antony 5. 

Tölur leiksins: 6-8, 12-11, 18-21, 19-26, - 23-30, 27-37, 38-41, 45-45, - 52-50,56-53, 60-60, 62-64, - 68-69, 72-75, 74-82, 80-87, 87-89. 

Dómarar leiksins voru þeir Einar Þór Skarphéðinsson og Lárus Ingi Guðmundsson. 

 
Jóhann Sigmarsson – www.tindastoll.is