Fréttir

Körfubolti | 17. júní 2004

NBA úrslitum lokið með sigri Detroit

Nýju NBA meistararnir eru frá bílaborginni Detroit. Þetta er staðreynd í dag, en fyrir nokkrum mánuðum eða vikum, eða jafnvel dögum, voru þeir ansi fáir sem hefðu spáð þeim sigri. (Nema kannski Falur Harðarson). Lið vesturstrandarinnar voru talin mun betri og gengu margir blaðamenn svo langt í vetur að kalla austurdeildina "Leastern Conference" í stað "Eastern Conference", og voru þar með að gera góðlátlegt grín að veikleika deildarinnar. Lið eins og Lakers, Spurs, Sacramento og Minnesota voru talin bera höfuð og herðar yfir alla austurdeildina og nánast enginn átti von á þessum úrslitum.

En samt vann Detroit. Með gríðarlega vel skipulögðum varnar- og sóknarleik, ásamt svakalegri baráttu lögðu þeir andstæðinga sína að velli, einn af öðrum, og í lokin voru Lakers-stjörnurnar eins og byrjendur í höndum þeirra. Aðeins ótrúleg 3ja stiga karfa frá Kobe Bryant kom í veg fyrir að Detroit "sópaði" Lakers 4-0.

Þótt Detroit hafi kannski ekki stjörnuleikmenn innan sinna vébanda, má segja að liðið sjálft sé stjarnan. Þeir sýndu, svo ekki verður um villst, að gott lið er ávallt betra en góðir leikmenn, því ekki er sjálfgefið að góðir leikmenn myndi gott lið. Larry Brown þjálfari Detroit er mikill kennari og leggur alla áherslu á að leikmenn spili "á réttan hátt" og honum er alveg sama hvað leikmenn fá í laun eða hve miklar stjörnur þeir þykjast vera, hann er ekki sáttur nema menn berjist á fullu og spili skynsamlega. Þeir sem lengi hafa fylgst með körfubolta þekkja vel handbragð Brown, en það felst m.a. í grimmri vörn og mikilli hreyfingu í sókninni, bæði á boltanum og leikmönnum. Mikið er um hindranir í sókninni og boltinn látinn ganga þar til góð færi skapast. Ekki er byggt á einstaklingsframtaki.

Fáir efast um að Shaq og Kobe séu öflugari leikmenn en allir Detroit-kallarnir, en samt tókst þeim ekki að vinna. Kannski var það af því að þeir fórnuðu sér ekki fyrir liðið, heldur vildu helst af öllu sjálfir vera í aðalhlutverki allan tíman. Þetta vissu Detroit og lögðu áhersluna á liðsheildina. Sérlega var athyglisvert að fylgjast með því að þegar boltin var "laus", t.d. eftir skot, þá náðu Detroit-menn boltanum, nánast ALLTAF. Svoleiðis barátta skilar árangri.
sá sem þetta skrifar er reyndar þeirrar skoðunar að Lakers liðið sé mun öflugra körfuboltalið og að Lakers "hefðu" átt að vinna, þeir höfðu það í hendi sér. En þegar einstaklingarnir verða stærri en liðið, þá vinna menn ekki neitt, amk. ekki í svona löngum og erfiðum seríum, svo einfalt er það.