Fréttir

Körfubolti | 17. janúar 2004

Nick Bradford fór á kostum þegar Keflavík tryggði sér sæti í Bikarúrslitum með 107-97 sigri í Grindavík

Það var eins og við var búist í Röstinni í dag, mikill hraði og miklar sviptingar í stórskemmtilegum undanúrslitaleik Bikarsins. Keflavík byrjaði með svakalegum leik og byrjunarliðið, Sverrir, Gunni E, Jonni, Nick og Derrick, var greinilega vel innstillt á þennan mikilvæga leik. Vörnin grimm og adrenalínið í botni. Enda náði Keflavík 14 stiga forystu, 31-17, og allt liðið á ferð og flugi. Grindvíkingar voru ekki jafn einbeittir og létu baráttugleðina slá sig út af laginu.

En eins og við sögðum í gær, þá er svona forskot fljótt að hverfa í leik þessara félaga. Og svo var einnig nú. Darryl Lewis fór í gang og Keflavík missti dampinn í vörninni þegar byrjunarliðinu var skipt út af. Vörnin riðlaðist og Grindavík náði nokkrum þristum og ekkert gekk að ráða við Darryl. Sóknin var þó áfram góð og fremstir í flokki fóru þeir fóstbræður Nick og Derrick sem skoruðu grimmt og nýttu sín færi vel. Í hálfleik hafði munurinn minnkað í sjö stig, 52-59. Merkilegt þótti manni að sjá, að þrátt fyrir hátt stigaskor, hafði ekki ein 3ja stiga karfa litið dagsins ljós hjá okkar mönnum.

Heimasíðunni leist ágætlega á málin og fannst Keflavík vera sterkara liðið, þrátt fyrir að munurinn væri ekki mikill. En svo fóru hlutirnir að sveiflast í aðra átt. Þriðji leikhlutinn var eign heimamanna sem skoruðu 31 stig gegn 19 hjá Keflavík. Vörnin var hriplek á þessum tíma og sóknin ómarkviss. Derrick hafði snúið á sér ökklann og stakk við. Hann harkaði þó af sér og hélt áfram. En Darryl Lewis fór gersamlega á kostum og óð inn í vörn okkar og skoraði nánast að vild. Alls gerði hann 40 stig í leiknum, kappinn sá.

Við upphaf fjórða leikhluta var staðan 83-78 fyrir Grindavík og keflvískir stuðningsmenn voru farnir að ókyrrast. Þeir hvöttu þó lið sitt óspart áfram og létu vel í sér heyra, jafnvel þótt engar væru trommurnar í þetta skiptið. Og fjórð leikhlutinn var hreint frábær hjá Keflavík. Gunnar Einarsson var afar grimmur báðu megin á vellinum og Derrick var farinn að ná sér í fætinum og skoraði nánast í hvert sinn sem hann fékk boltann undir körfunni. Varnarmenn Grindavíkur, Guðmundur Braga og Timothy Szatko, réðu ekkert við hann. En það var Nick Bradford sem stal senunni og leiddi Keflavíkurliðið til sigurs í dag. Hann tók fastar á Lewis í vörninni og splundraði oft vörn Grindvíkinga. Keflavík komst yfir og náði fimm stiga forskoti 87-92. Leikurinn hafði snúist við. Maggi, sem reyndar var ekki atkvæðamikill í leiknum, átti ótrúlegan þrist sem auk forskotið. Keflavíkurdrengir fundu blóðbragðið og urðu ekki stoppaðir. Nick átti síðan tvær körfur sem gulltryggðu sigurinn, fyrst þrist og síðan "fade away" körfu sem var svakaleg. Í lokinn átti hann síðan ótrúlega rakettu-sendingu frá miðjum vellinum og undir körfuna á Derrick sem setti tvö stig í viðbót. Þegar upp var staðið var munurinn 10 stig, 97-107, og góður sigur á erfiðum útivelli í einum mikilvægasta leik ársins staðreynd. Keflavík mætir Njarðvík í úrslitunum eftir þrjár vikur, þann 7. febrúar.

Nick, Derrick og Gunnar E léku allir stórkostlega í kvöld og voru mennirnir á bak við sigurinn, skoruðu t.d 90 af 107 stigum liðsins. Gaman er að sjá til Gunna, þar sem hann var hvetjandi og drífandi þegar syrta tók í álinn. Hann lokaði á Pál Axel, lék góða vörn og skoraði 22 stig. Derrick barðist í gegnum meiðslin og var óstöðvandi í sókninni, skoraði 33 stig.. Maður leiksins var þó Nick Bradford, með 35 stig, sem lék frábærlega, þótt hann hafi átt í erfiðleikum með Lewis. Nick var áræðinn og hugmyndaríkur, tók af skarið í lokin og lék eins og hann gerir best. Sverrir og Jonni voru einnig stórgóðir, börðust vel í vörninni og skiluðu sínum hlutverkum með sóma. Halldór átti ágætis innkomu, en má vera grimmari í vörninni, Hjörtur var solid, en sótti full margar villur á stuttum tíma. Eins hefði hann mátt halda áfram að skjóta, í framhaldi af leiknum gegn ÍR um daginn, því stundum horfir hann full lítið á körfuna. Davíð og Gunnar Stef skiluðu sínu, en gerðu engar rósir í þetta skiptið. Maggi Gunn var frekar slakur, en átti þó mjög mikilvægan þrist, eins og svo oft áður.

Það verður að teljast merkilegt að Keflavík skoraði 107 stig, en aðeins þrjár 3ja stiga körfur litu dagsins ljós. Tvær þeirra voru þó "stórar", frá Magga og Nick í 4ða leikhluta. Sóknarleikurin var góður hjá okkur og átti liðið í litlum vandræðum með að koma boltanum í körfuna, hraðinn var mikill og leikurinn opinn. Vörn Grindavíkur náði engan veginn að eiga við sóknarþunga Keflavíkur í þetta skiptið, þrátt fyrir að 3ja stiga árásina hafi vantað.

Varnarleikur okkar manna var ekki alveg í sama klassa og sóknin. Þó var hún afar sterk í byrjun og svo aftur í blálokin. Þar á milli var hún ekki sterk og náðu menn t.d. ekki að loka á Lewis sem óð inn og út um teiginn alveg fram á síðustu mínútur, er loks tókst að hemja hann. Lewis er hreint frábær leikmaður og alveg ótrúlegt hvernig hann skorar í teignum, ekki hærri en hann er. Timothy Szatko er ágætur í sókninni, en afar þungur og hægur og var enginn hindrun fyrir Derrick sem gat skotið yfir hann eða farið fram hjá honum. Timothy er ekki í formi, en eins og hann lék í dag er hann ekki betri fyrir liðið en Trammel sem var látinn fara um jólinn, amk. ekki varnarmegin á vellinum. Páll Axel var eitraður sem fyrr, en hans var vel gætt af Jonna og Gunna E. Ef menn gleymdu sér var hann fljótur að refsa. Helgi Jónas lék mikið en bombaði ekki að utan, enda hefur hann verið veikur og lítið æft. Hann er samt skeinuhættur og svaka fljótur með boltann.

Þessi sigur var góður og alveg gríðarlega mikilvægur, því nú er Keflavík á leiði í Höllina í Bikarúrslit, en fátt er skemmtilegra en það. Og ekki spillir fyrir að andstæðingar okkar þar verða Njarðvíkingar. Sem sagt, mikið fjör í vændum, eins og það gerist best!

Nú þurfa drengirnir að fara að pakka niður fötunum sínum, því á mánudagsmorgun verður haldið til Frakklands, þar sem leikið verður gegn Dijon á þriðjudaginn.