Nick Bradford kemur aftur til Keflavíkur
Stjórn körfuknattleiksdeildarinnar hefur ákveðið að gera breytingar á liði sínu. Mike Mathews sem leikið hefur með liðinu síðustu vikur er á heimleið en í stað hans kemur góðkunningi okkar Nick Bradford aftur til Keflavíkur. Mike náði ekki að falla inn í liðið þrátt fyrir góðan vilja og er það skoðun þjálfara og stjórnar að liðið verði öflugara með Nick innanborðs þrátt fyrir góðan sigur í kvöld.
Nick lék afar vel með Keflavík seinni hluta leiktíðar í fyrra, eftir að hafa átt frekar brösuga byrjun. Hann brilleraði í Evrópukeppninni og skoraði yfir 20 stig að meðaltali, tók um 10 fráköst og gaf um 5 stoðsendingar á leik, auk þess sem hann er mikill "þjófur" og stal um þremur boltum á leik. Í haust hóf Nick að leika í bresku úrvalsdeildinni en "fílaði sig" ekki þar og lét þau boð berast að hann væri reiðubúinn að koma til Keflavíkur ef sá möguleiki væri fyrir hendi. Keflvíkingar vita hvað þeir hafa í Nick og var því slegið til. Hann er engin stórstjarna, en mikill liðsmaður og leiðtogi, einnig sérlega góður varnarmaður og fjölhæfur. Við hlökkum til að sjá Nick aftur í Keflavíkurbúningnum um leið og við þökkum Mike fyrir hans framlag.
Nick í baráttunni gegn Toulon í fyrra