Nick Bradford kemur til Keflavíkur
Í gærkvöldi náðust samningar við Bandaríkjamanninn Nick Bradford og mun hann leika með Keflavík á komandi leiktíð. Nick er 25 ára og um 2 metrar á hæð. Hann hefur leikið mest í stöðu framherja hingað til. Undanfarin ár hefur hann leikið í "neðri" atvinnumannadeildum í Bandaríkjunum en frá 1996-2000 lék hann með Kansas háskólanum sem er einn sá allra öflugasti í Bandaríkjunum. Þaðan hafa margir snillingar komið inn í NBA deildina og þeirra frægastur er án efa Wilt Chaimberlain. Einnig má nefna menn eins og Paul Pierce, Danny Manning og Jacque Vaughn, en Nick lék um hríð með Bostonskyttunni Paul Pierce.
Á háskólaferlinum skoraði Nick tæplega 10 stig í leik og hirti að meðaltali 5-6 fráköst. Hann þótti einnig afkastamikill þjófur og "stal" t.a.m. 73 boltum eina leiktíðina og er fjórði afkastamesti boltaþjófurinn í 105 ára glæstri sögu Kansas-skólans. Í heildina lék hann 173 leiki fyrir háskólann og hafa aðeins tveir leikmenn leikið fleiri leiki, annar þeirra er Danny Manning.
Nick þykir fjölhæfur leikmaður og afar grimmur varnarleikmaður, sem sést vel á fjölda frákasta og stolinna bolta. Hin síðari ár hefur hann staðið sig prýðilega í ýmsum deildum, þó ekki séu til nákvæmar upplýsingar um afrek hans. Hann hlakkar til að koma til Íslands og við treystum því að hann styrki liðið verulega og efli okkur í baráttunni, ekki síst í Evrópukeppninni.
Nokkur meðaltöl frá háskólaferli Nicks:
- stig: 9,4
- fráköst: 6,0
- mínútur: 27,1
- skotnýting: 51,3%
- 3ja stiga nýting: 25%
- vítanýting: 63,3%
- stoðsendingar: 3,4
- stolnir boltar: 2,1
- varin skot: 0,6