Fréttir

Karfa: Karlar | 23. apríl 2010

Nick Bradford klárar úrslitakeppnina með Keflavík

Eftir heimsókn til læknis í dag, kom það í ljós að Draelon Burns leikur ekki meira með Keflavík í úrslitakeppninni. Þar af leiðandi ákváðu forráðamenn liðsins að leita til Nick Bradfords til að fylla upp í skarð Burns. Þeirri bón tók hann vel og féllst hann á að koma til Keflavíkur og veita aðstoð sína. Hann mun vera með í leiknum á morgun klukkan 16:00.

Stjórn Körfuknattleiksdeildar Njarðvík fær þakkir fyrir að taka vel í þessa hugmynd og veita samþykki fyrir félagaskiptum.