Fréttir

Körfubolti | 5. nóvember 2004

Nick er klár í slaginn gegn ÍR og Madeira

Keflvíkingurinn frá því í fyrra, Nick Bradford, er mættur aftur til Keflavíkur. Hann kom til landsins um hádegisbilið og dagurinn fór í að ganga frá leikheimild sem er orðinn klár, bæði fyrir Ísland og Evrópu. Því mun hann leika með liðinu í fyrsta sinn á þessari leiktíð í seinni leiknum í 8-liða úrslitum Hópbílakeppninar á morgun gegn ÍR og eins verður hann orðinn löglegur í Bikarkeppni Evrópu á miðvikudaginn gegn Madeira.

Almenn ánægja er með endurkomu Nicks og vonast menn nú eftir því að liðið sé loks orðið klárt eftir smá "Kanabras". Kosturinn við Nick er náttúrulega sá að hann gjörþekkir liðið, bæði leikmenn og leikstíl, þannig að hann mun verða fljótur að koma sér inn í allt. Eins leið honum vel í Keflavík í fyrra, þannig að hann á örugglega eftir að skila því sem menn vonast eftir.

Nú er bara að mæta í Sláturhúsið á morgun og kíkja á liðið. Við getum nánast bókað að við munum komast áfram því hæpið verður að teljast að við töpum fyrir ÍR með 46 stiga mun. Engu að síður má búast við ágætri skemmtun á morgun og svo náttúrulega stórskemmtun á miðvikudaginn!