Nick með 27 stig og 11 fráköst í léttum sigri gegn ÍR
Það var ekki annað að sjá en að Nick Bradford væri glaður að vera kominn aftur til Kef. Leikurinn í dag var vissulega bara formsatriði, enda seinni leikur gegn ÍR í 8-liða úrslitum Hópbílakeppninnar, sá fyrri vannst með 46 stigum. Nick virðist vera í feiknaformi og skein leikgleðin af honum. Hann gerði 27 stig, tók 11 fráköst, stal 5 boltum og varði 2 skot á þeim 22 mínútum sem hann lék. Hann er líflegur pilturinn og mun hjálpa okkur verulega í baráttunni, á því er enginn vafi.
Annars var leikurinn frekar auðveldur, eins og menn áttu líklega von á. Sverrir Þór átti góðan dag og fer óðum að komast í körfuboltaform eftir knattspyrnuiðkun í sumar. Hann skoraði 16, gaf 8 stoðsendingar og stal 7 kvikyndum í pressunni. Dóri (6 stig, 8 frák) og Gunni Stef (10 stig) áttu ágæta spretti, en Gunnar Einars og Jonni hvíldu í dag. Spilatímanum var dreift bróðurlega.
Nú er bara að æfa í nokkra daga og undirbúa sig fyrir næsta stórleik sem verður á miðvukudaginn, en þá er leikur í Evrópukeppninni gegn Madeira, en þann leik ætlum við að vinna!