Nick og Derrick eru stigahæstir í Evrópudeildinni og Keflavík hefur skorað flest stig allra félaga eftir þrjár umferðir
FIBA Europe á heiður skilið fyrir frábæra heimasíðu þar sem meðal annars er að finna alla tölfræði úr leikjum Bikarkeppni Evrópu á mjög aðgengilegan hátt (eftir að maður lærir á síðuna, þeas.).
Hér er línkur inn á síðu sem segir hverjir eiga metin í hinum og þessum tölfræðiþáttum, bæði lið og einstaklingar.
Skoðum það aðeins nánar:
Nick er stigahæstur Vesturdeildar (bæði A og B riðill) með 24,7 stig, Derrick er í öðru sæti með 24,3. Þriðji er Spánverjinn Morales frá Ovarense með 19,0. Magnús Gunnarsson er 18. á listanum með 15,3 stig og Gunni E 24. með 14,0.
Bestu 2ja stig skotnýtingu hefur Gugino frá Toulon, 81%, en okkar menn eru nr. 7, Nick með 62% og nr. 14, Derrick með 57%.
Miranda frá Queluz, Portúgal hefur bestu 3ja stiga nýtinguna með 88% (5 af 6) og þeir Gimenez og Fernandez frá Madeira hafa yfir 60%. Bestu Keflvíkingarnir eru Gunnar E í 11. sæti með 46% (6 af 13) og Magnús með 42% (11 af 26). Magnús er jafnfram nr. 2 á lista yfir þá sem hafa tekið flest 3ja stiga skot, efstur er Legname frá Toulon með 32.
Vinur okkar Micheal Wilson frá Ovaerense hefur tekið flest fráköst, alls 11,7 að meðaltali. Okkar menn eru þar ofarlega á lista, Nick nr. 2 með 10,0 og Derrick nr. 4 með 9,7. Gunnar E skríður einnig inn á listann í 23. sæti með 4,3 fráköst í leik.
Magnús Gunnarsson og Falur komast báðir á lista yfir flestar stoðsendingar, eru nr. 5 og 9 með 5,3 og 4,7 að meðaltali.
Að lokum má geta þess að við eigum villukónga keppninnar, sem af er: Á toppnum trónir Jonni með 4,3 villur að meðaltali, en skammt undan, nr. 3 og 4 eru félagarnir Derrick og Nick með 4,0.
Þegar heildartölur liðanna eru skoðaðar kemur soldið merkilegt í ljós:
- Keflavík hefur skorað flest stig allra 8 liðanna, alls 101 a.m.t. (næst kemur Dijon með 94)
- Keflavík er aðeins í 4. sæti yfir 3ja stiga nýtingu (35%), Madeira efst með 49%
- Keflavík hefur tekið flest fráköst allra liða (!!!!), þrátt fyrir að vera með lágvaxnasta liðið, alls 37 að meðaltali
- Keflavík hefur gefið flestar stoðsendingar, alls 26,3
- En Keflavík hefur einnig fengið á sig flestar villur (ekkert nýtt) eða 24 að meðaltali
- Keflavík hefur stolið boltanum oftast allra liða, alls 11,3 svar en einnig tapað honum oftast, eða 22,3svar.
Gaman að þessu . . . .