Nick og Derrick komnir úr jólafríi
Félagarnir Nick og Derrick fengu leyfi til að verja jólunum á heimavelli með fjölskyldum sínum. Þeir komu síðan aftur til Íslands í morgun og eru klárir í slaginn á ný. Framundan hjá strákunum er útileikur í deildinni gegn Hamri á sunnudaginn og síðan er stórleikur í Hafnarfirðinum fimmtudaginn 8. jan. gegn Haukum í átta liða úrslitum Bikarkeppninnar. Síðan kemur All-star helgin og svo hefst fjörið af alvöru . . . .
Stúlkurnar byrja á nýju ári á heimavelli gegn Grindavík á morgun, laugardag, kl. 17.15. Síðan kemur ströng helgi þar sem fyrst er leikið gegn Þór á Akureyri í 8 liða úrslitum Bikarsins laugardaginn 10. jan. og síðan gegn ÍR á heimavelli daginn eftir, sunnud. 11. jan. kl. 17.15.