Fréttir

Níu í röð hjá Keflavíkurstúlkum
Karfa: Konur | 15. nóvember 2012

Níu í röð hjá Keflavíkurstúlkum

Keflavíkurstúlkur héldu uppteknum hætti í gær þegar þær heimsóttu granna sína úr Grindavík og sigruðu 65-71. Þær hafa nú sigrað í fyrstu níu leikjum Domino´s deildarinnar. Verður ekki annað sagt en þetta unga og bráðskemmtilega lið líti vel út og sé til alls líklegt í vetur.

Jessica Ann Jenkins var stigahæst í liði Keflavíkur með 16 stig en fast á hælum hennar komu "gömlu" kempurnar Birna Valgarðsdóttir með 14 stig og 9 fráköst, Pálína Gunnlaugsdóttir með 14 stig og 5 stolna og Bryndís Guðmundsdóttir með 13 stig. Hér ber að taka fram að þó þær tvær síðarnefndu séu rétt skriðnar yfir tvítugt þykir það nánast orðið gamalt í Keflavíkurliðinu enda margar af burðarstólpum liðsins vart komnar með bílpróf...
 
Myndin sem fylgir fréttinni er fengin að láni frá hinni margrómuðu körfuboltasíðu www.karfan.is og er eignuð ljósmyndaranum Heiðu.