Fréttir

Körfubolti | 22. maí 2003

Níu Keflvíkingar leika gegn Norðmönnum í kvöld - Ókeypis aðgangur

Í kvöld, föstudag, leika Íslendingar vináttuleiki gegn Norðmönnum. Kl. 18 leika konurnar og síðan kl. 20 leika karlarnir. Við Keflvíkingar eigum alls 9 leikmenn í landsliðunum.

Í kvennaliðinu eru fimm Keflvískar stúlkur, þær Erla Þorsteinsdóttir, Birna Valgarðsdóttir, Marín Rós Karlsdóttir, Kristín Blöndal og Rannveig Randversdóttir sem leikur sinn fyrsta leik. Þjálfari kvennaliðsins er líka Keflvíkingur, Hjörtur Harðarson. Anna María Sveinsdóttir gaf ekki kost á sér.

Í karlaliðinu leika þeir Magnús Gunnarsson, Jón N Hafsteinsson, Gunnar Einarsson og Sverrir Þór Sverrisson. Damon Johnson gafa ekki kost á sér í þetta verkefni sem og reyndar ýmsir fleiri, enda má segja að við stillum ekki upp okkar sterkasta liði í þessa leiki. Auk Damons vantar m.a. Brenton Birmingham, Keith Vassel, Jón Arnór Stefánsson, Herbert Arnarsson, Teit Örlygsson, Helga Jónas Guðfinnsson, Pál Kristinsson, Guðjón Skúlason og Kristinn Friðriksson, sem annað hvort ekki gáfu kost á sér eða voru ekki valdir.

Fyrirtækin Esso, Lýsing og Hópbílar hafa með myndarlegum stuðningi gert KKÍ það kleyft að bjóða öllum landsmönnum ókeypis á landsleikina við Norðmenn sem fram fara nú um helgina. Er þetta ekki í fyrsta sinn sem þessi fyrirtæki taka höndum saman og bjóða körfuknattleiksunnendum ókeypis á landsleiki. Vonandi nýta sem flestir þetta góða boð.

Það verður þó að segja eins og er að leikirnir hafa nánast ekkert verið kynntir og hefði kynningin þurft að vera miklu öflugri. Sá sem þetta ritar hitti t.d. harða körfuboltaunnendur í kvöld sem aldrei láta neitt fram hjá sér fara og þeir höfðu ekki hugmynd um leikina. En við vonum að sem flestir frétti af þeim og mæti á Sunnubrautina, ekki síst þar sem okkar hlutur er stór í báðum landsliðunum.